Georg Haraldsson
Minningarsíða
15.12.2007 03:10:09 / Goggi

Jólafrí vúhú!!

Jæja fyrst maður er kominn í jólafrí og hættur þessu prófstressi þá er svosem allt í lagi að henda inn nokkrum línum.

Ég var semsagt að klára mitt fjórða og síðasta próf í dag/gær(klukkan orðin meira en 23:59) og það gekk bara fínt. Ég var semsagt í fjárhagsbókhaldsprófi í dag og það próf var ekki nema FJÓRIR tímar!! Ég fór semsagt í prófið kl 14 og strax og það var búið þurfti ég að bruna á æfingu sem byrjaði kl 18, ég var bara búinn 5-10 mín í 18 hehe... þvílíka stressið eithvað.. svo ég hafði eiginlega ekki tíma til að átta mig á því að ég væri búinn í prófunum fyrr enn eftir æfinguna.

Öll hin prófin voru "bara" ÞRÍR tímar, svo þetta er búið að vera frekar strembnar  síðustu tvær vikur. Svo var ég í einum áfanga enn sem var ekkert lokapróf í og náði ég honum léttilega. Ég er bara búinn að fá útúr Stærðfræðinni og ég náði, það var 27% fall í afanganum svo það var gott að ná þessu. Núna bíður maður bara spenntur eftir að fá einkunnirnar fyrir hin prófin. Er ekki ennþá búinn að fá einkunn úr fyrsta prófinu sem ég tók 6. des. og maður er orðinn pínu óþolinmóður með að fá útúr því..

En annars er bara allt fínt að frétta af mér núna. Jólafríið stendur til 10. Janúar en þá byrjar einmitt skólinn aftur. Svo það er næstum mánaðar frí svo það er bara snilld.

Kannski að bæta inn einum djók sem ég sá á netinu:
A convict breaks into a house and ties up the husband and his wife. He then kisses the wifes ear and then runs off to the bathroom. The husband whispers to his wife "Satisfy him, or he'll kill us. I saw the way he kissed you, just be strong, i love you!" The wife replies, " He didn't kiss me, he whispered in my ear he's gay, horny and looking for vaseline. I told him it was in the the bathroom, so now let's see who's fucking strong now"

Skemmtið ykkur bara í jólafríinu ykkar og hafið það gott um jólin.

kv. Goggi


» 11 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 16:08:09 / Goggi

Ég fór á Everton vs. Liverpool+Clattenburg dómari

Nýr bloggur hérna

Ég ætla að byrja á að nefna það að þann 19. október 2007 var ár síðan ég og Heijó byrjuðum saman. Ég elska þig ótrúlega mikið ástin mín:*:*:*

Ég er ekkert voðalega mikið í stuði til að skrifa um leik Everton gegn Liverpool sem ég fór á Englandi. Eina sem ég segi er að dómari sem fer með Liverpool í ásíuferðina(æfingarferð liverpool) í sumar og er reglulega á Anfield að horfa á liverpool leiki átt klárlega ekki að dæma leik Everton-Liverpool. Enda kom það niður á daginn að hann gaf liverpool sigurinn með alveg hreint fáranlegum dómum, maður getur sætt sig við ein og ein mistök hjá dómara, en þegar hann gerir 3-4 STÓR mistök öll gegn Everton þá er eithvað að. Ég hef stundum orðið reiður yfir dómara en þetta var bara svona to much fyrir mig. Enda er þessi dómari kominn í bann fyrir þennan leik og ætti réttilega ekki skilið að dæma annan leik í úrvaldseild á næstunni og á ekki skilið að fá að dæma annann leik með Everton!

Jæja fyrirgefiði þetta svekkelsi hehe, ef þið væruðu Evertonmenn eða bara fótbolta fólk sem vissi eithvað um fótbolta og væruð annað en liverpool menn og hafið horft á leikinn þá ættum við að vera tala sama málið hérna.

Við fórum semsagt suður á föstudagmorguninn og komum seint til Liverpoolborgar á föstudeginum. Þessi ferð má taka saman í stuttu máli sem mikinn hlátur, skemmtun, frábæran leik fyrir utan dómaraskandal!, MIKLA bjórdrykkju, meiri hlátur, Everton megastore, fínt út að borða sem endaði með því að aðalrétturinn var vibbi hehe, fórum aftur út að borða þar var maturinn töluvert betri. Fórum þrjú kvöld út á lífið og kíkkuðum á stemmarann í liverpoolcity sem var bara hreint þrælmögnuð.

Það var semsagt ég, elvar, halli, gunnþór, baddi og ari sem fórum í þessa ferð og var þetta bara ein mesta skemmtun sem ég hef upplifað. Frábær ferð með frábæru fólki og var klárlega ekki langt í hláturinn í þessari ferð. Ég verð bara að segja að þetta er skemmtilegasti hópur sem ég hef farið með til útlanda, enda var bara eins og við hefðum allir þekkst þegar við fórum en t.d. baddi og ari eru frá RVK og Hafnafirði, en þetta endaði með því að maður hefur aldrei skemmt sér jafn mikið og örugglega aldrei hlegið jafn mikið á 4-5 dögum eins og í þessari ferð. Semsagt þessi ferð var alveg hreint frábær í alla staði kannski fyrir utan Clattenburg dómar leiksins.

Að horfa á leik í sjónvarpi miðað við að horfa á leik á vellinum sjálfum má líkja við það að horfa á svarhvítt sjónvarp frá 1970 miðað við bestu flatskjái dagsins í dag. Þetta hljómar svona furðurlega kannski, en váááá hvað það er fáranlega miklu skemmtilegra að vera á vellinum. Það er nokkuð ljóst að ef ég verð vel efnaður í framtíðinni þá ætla ég að eiga ársmiða á völlinn!! Þetta er bara svo mikil upplifun að sjá alla þessa leikmenn með berum augum og vera þarna þegar allir áhorfendurnir eru og maður getur líka lifað sig ótrúlega inn í leikinn eins og ég gerði. Tók mig svona 15-20 mín að koma mér inní þetta, en eftir það þá öskraði maður eins og asni hehehe.... enda fékk röddinn að kenna á því og ég missti hana um kvöldið haha.

Geggjað síðan eftir leikinn að fá að taka í hendina á flestum leikmönnum Everton og taka myndir af þeim en við strákarnir klikkuðum samt á að hafa penna með.... munum það bara næst.

Ég ætla að reyna henda inn myndum úr ferðinni við tækifæri. En held þetta sé annars bara komið fínt í bili!

En hvernig væri svo að sjá nokkur comment? Það virðist vera stór munur á að commenta og skoða síður.

kv. Goggi    


» 14 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 14:15:09 / Goggi

Halló halló

Ég er í góðri eyðu núna, svo maður getur svosem hennt inn nokkrum orðum..

Boltinn er bara búinn í sumar, við í Magna náðum að halda okkur í 2. deilinni sem er ekkert nema gott mál. Þannig að maður er bara kominn í frí frá boltanum í 2 mánuði eða eithvað álíka. Lokahófið hjá Magna var þarsíðustu helgi og var bara rosalega gaman á því. Það var flottur grillmatur, bjór og allur pakkinn útá Grenó. Stjáni var valinn bestur og Steini var markakóngur, til hamingju drengir! Svo eftir þetta fóru við á "kálfinum" til akureyrar þar sem unga fólkið skellti sér í sjallann á meðan gömlu kallarnir voru orðnir of fullir til að fara á eithvað djamm heheh. Við fórum semsagt á Palla sem var svosem ágætt til að byrja með, svo var orðið svo stappað þarna inni og fólk búið að fylla sviðið og ég veit ekki hvað og hvað, þannig að ég og heijó fórum bara heim um hálf 4 þar sem Gunni reddaði okkur hjem.

Ég mun taka því nokkuð rólega á næstunni, að vísu er ég nú þegar búinn að fara í bolta 3 sinnum eftir að tímabilið var búið svo maður er ekkert alveg hættur í 2 mánuði í bolta. Svo þegar maður nennir þarf maður að kaupa sér kort í ræktinni og byrja að lyfta og sprikkla eithvað.

Annars gengur bara allt fínt í háskólanum, haldiði að kallinn hafi ekki fengið 9,3 í 30% prófi sem var að vísu í léttari kanntinum að mínu mati. Það væri nú ekki verra ef einkunnirnar myndu halda áfram að vera í þessum dúr í vetur.

Svo annað, ég var að búa mér til myspace, veit nú ekki hvort ég nenni að nota það eithvað. Ég bjó bara til myspace til að geta skoðað myndir og allt það drasl sem er ekki hægt ef maður er ekki með myspace. Það er að vísu ekkert á síðunni ennþá. Urlið er: www.myspace.com/goggif

kv. Goggi


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 16:04:02 / Goggi

Loksins sigur!

Nau nau kallinn er bara að blogga!

Í ljósi þess að ég er að bíða eftir æfingu þá ætla ég að henda inn nokkrum línum, því fólk er víst farið að sækjast eftir eins og einu bloggi.

Kannski að byrja á að minnast á það að við í Magna gerðum okkur lítið fyrir og unnum Sindra frá Hornafirði 2-3 á útivelli og var Steini kallinn með þrennu og var líka valinn maður umferðarinnar. Til hamingju með það!(meigum samt ekki gleyma hælspyrnunni frá mér í þriðja markinu heheh). Þessi sigur var mjög kærkominn í ljósi þess að við þurftum einfaldlega að vinna leikinn. Staðan er þannig núna að við erum í 8 sæti með 11 stig á meðan Sindri og ÍH eru með 10 stig og það er bara ein umferð eftir, sem verður leikin á laugardag. Við í Magna ætlum okkur ekkert að treysta á að hin liðin tapi svo við ætlum svo sannarlega að mæta í Selfossleikinn á laugardag til að vinna!

Þannig að ég vill sjá alla skella sér til Grenivíkur á laugardag kl 1400 þegar leikur Magna gegn Selfoss fer fram!

Það stefnir allt í skemmtilegann laugardag. Fyrst er það Everton-Man Utd kl 11, svo er ég að keppa kl 14, svo um kvöldið verður lokahófið hjá Magna. Svo fer maður að öllum líkindum á Palla í sjallanum svo lengi sem maður kemst af víkinni. Svo það stefnir allt í að það verði tekið gott djamm á laugardag! Enda svokölluð vertíðarlok hjá okkur Magnamönnum.

Útí aðra sálma.. ég fór í mínar fyrstu réttir síðustu helgi með henni Heijó minni. Það var bara gaman af þessu, alltaf gaman að prufa eithvað sem maður hefur aldrei gert áður. Reynsluboltinn ég fekk enga marblettir eða neitt á meðan sumir eru ennþá með marbletti hehehe...

Annars held ég að þetta sé komið gott í bili.

kv. Goggson


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 13:02:56 / Goggi

Háskólinn byrjaður

Jæja ég er að spá í að henda inn nokkrum línum fyrir ykkur sem eruð svo skemmtileg að skoða síðuna mína.

Háskólinn er byrjaður og leggst þessi viðskiptafræði bara ágætlega í mig. Þetta byrjar frekar rólega enn þetta á eflaust eftir að verða mjög strembið. Annars er bara ekkert voðalega mikið að frétta af mér...

Við í Magna erum að fara austur á laugardag að keppa gegn Hetti og er þetta bara algjör skyldusigur, enda erum við að berjast um það að halda liðinu uppi og það eru bara 3 leikir eftir. Það er bara kominn sá tími sem að maður verður bara að leggja allt í sölurnar til að vinna, enda gríðarlega mikið í húfi fyrir klúbbinn. Tveir útileikir í röð, fyrst Höttur og svo leikur gegn Sindra sem verður mjög líklega algjör úrslita leikur um hvernig þetta fer allt saman. Svo endum við á móti Selfossi heima, enn þeir eru að berjast um að komast upp svo það verður mjög erfiður leikur.

Mínir menn í Everton voru að gera mjög góð kaup enn þeir keyptu Yakbubu á £11.25M og þar með varð hann dýrasti leikmaður í sögu Everton. Enda erum við að tala um mann sem er búinn að skora í kringum 20 mörk á leiktíð síðustu 4 tímabil og er bara 24 ára gamall. Svo það verður gríðarlega spennandi að fylgjast með mínum mönnum í vetur, með AJ og Yakbubu í framlínunni. Össs minns er sáttur.

Hef eithvað voðalega lítið að segja þessa stundina...

Kv. Goggi


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 17:41:45 / Goggi

Comeback!!

Í ljósi þess að ég hef ekki bloggaði í tvo mánuði ætla ég að koma með smá "comeback" í bloggbransann svokallaða.

Maður hefur nú gert hitt og þetta síðustu tvo mánuði.. nenni nú ekki alveg að skrifa 10 bls um það.. en ég bulla bara eithvað eins og vanalega í þessum bloggum.

Ég var að vinna minn síðasta vinnudag í sumar á föstududaginn. Enda er skólinn hjá mér að byrja næsta mánudag svo ég ákvað að vera góður við sjálfan mig og taka mér alveg heila viku í sumarfrí, í ljósi þess að ég hef ekki tekið mér neitt frí í sumar. Þar að auki hef ég verið að keppa nær allar helgar, svo að vikufrí ætti nú að koma sér ágætlega fyrir komandi átök í Háskólanum.

Eins og sumir vita þá er ég að fara í Háskólann á Akureyri á Viðskiptafræðibraut. Ég vona að þetta verði eithvað sem ég nenni að læra, en það mun bara koma í ljós. Enda er ég búinn að vera þvílíkt óákveðinn með hvað ég hef viljað læra síðan maður byrjaði í VMA.

Ýmislegt hefur gerst síðan ég bloggaði síðast.. ég er búinn að keppa alla leikina með Magna síðan ég fór þangað og hef verið mjög heppinn með meiðsli í sumar, því það hefur bara ekkert verið að mér að viti, sem er bara mjög gott mál. Verslunarmannahelgin var fyrir tveimur helgum og maður tók nú alveg fínasta djamm á þetta, fór t.d. í þetta svokallaða "froðupartý" á 1929/Capone með Heijó minni á sunnudeginum og var ég aldrei að búast við svona rosalegri froðu.. þetta var allsvaðalegt sko. Ég hefði allavegana ekki viljað vera einn af þeim sem þurfti að hreinsa staðinn eftir þetta... Þetta var alveg ótrúlega gaman þangað til að maður þurfti að redda sér heim og sá að síminn virkaði ekki hehe, en við fengum að hringja á staðnum og gamli reddaði málunum. Maður hefði dáið úr kulda ef maður hefði þurft að labba heim eftir þetta.

Ég og Heijó tókum síðan eina helgi fyrir sunnan fyrr í sumar, það var semsagt leikur á laugardeginum fyrir sunnan svo við ákáðum að gera helgarferð úr þessu og fengum við að gista hjá Baldri bró. Þetta var fínasta ferð og aldrei að vita nema maður nenni að henda inn myndunum frá ferðinni við tækifæri.

Svo núna á laugardaginn var staffadjammið í vinnunni semsagt hjá flokkstjórunum og var hist á dátanum og var frí pizza og bjór fyrir liðið. Ekki amarlegt það, svo eftir þetta var kíkkað aðins á Kaffi Ak. á gólfið.

Næsti leiku hjá mér er á laugardag fyrir sunnan gegn Aftureldingu og væri alveg magnað hjá okkur Magnamönnum að koma heim með 3 stig. Þetta verður erfiður leikur enn allt er hægt!

Jæja ég þarf að fara drífa mig á æfingu... ég ætla ekki að lofa að blogga fljótlega en samt aldrei að vita

Svo væri nú gaman að fólk myndi gera sér lítið fyrir og kvitta hjá kjellinum

kv. Goggi


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 17:25:39 / Goggi

Vaglaskógur

Ætla að klára þetta blogg sem ég var byrjaður á.. hafði ekki tíma í gær til að skrifa neitt því ég var að fara á æfingu. 

Það eru komnar myndir frá því að við kíkkuðum útí Vaglaskóg síðustu helgi

Ég fór semsagt síðustuhelgi útí Vaglaskóg ásamt Heijó minn, Söndru systir Heijó og svo börnum hennar þeim Ívari og Katrínu. Þetta var svona pínu skyndiákvörðun, því þetta var eiginlega bara ákveðið á föstudeginum að fara. Sandra vildi fá mig og Heijó með sér, enda erum við topp félagsskapur hehe. En að vísu endaði það þannig að ég og heijó vorum þarna fram að Sunnudag en Sandra og börnin fóru á laugardagskvöldinu því að þau voru orðin svo brunninn eftir laugardaginn. Enda var sól og blíða og hitinn var uppundir 25°C svo maður baðaði sig í sólinni allann daginn og var ekki annað hægt en að vera á kassanum hehe

Þessi ferð var bara mjög góð og skemmtileg tilbreyting. Fólk fékk að kynnast hæfileikum mínum á grillinu o.fl. Svo má ekki gleyma að nefna að við urðum svo heppin þegar við ætluðum að fara leggja af stað heim að bílinn var orðinn straumlaus, enda vorum við búin að hlusta á útvarpið í bílnum allt laugardagskvöldið án þess að bílinn var í gangi... svo við þurftum að finna næsta jeppakall til að gefa okkur straum. Þannig að við komumst allavegana heim.

Svo má ég ekki gleyma að nefna að ég á afmæli núna á föstudaginn 15. júní.. þannig að kallinn er að verða hundgamall semsagt 21 árs. Allar gjafir verða mótteknar annaðhvort í Einholti 28 eða Akurgerði 5d frá 8:02-23:09

Næsti leikur með Magna er á laugardaginn 16. júní kl 14 á grenivíkurvelli gegn Aftureldingu. Klárlega allir að mæta á völlinn!! Ég get semsagt ekki djammað á afmælisdaginn minn svo það verður örugglega kíkkað á djammið á laugardaginn. Svo endilega láta mig vita af góðu partý!!

kv. Goggi


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 23:32:44 / Goggi

3. Júní 2007

Kominn tími á að henda niður nokkrum orðum á þessa skemmtilegu bloggsíðu mína, sem fólk er búið að vera gríðarlega duglegt að commenta á uppá síðkastið!! Spurning að fara hætta þessu... 

Annars er ég búinn að gera ýmsilegt síðan ég bloggaði síðast. 

Síðasta laugardag(26. maí) trúlofuðum ég og Heijó okkur. Án efa einn af bestu dögum ævi minnar!

Ég og Heijó fórum í smá road trip til Hríseyjar síðasta mánudag, enda var frí hjá okkur í vinnunni og komum við henni Svanhildi vel á óvart. Ég meina hver kíkkar ekki útí Hrísey til að fá sér Hamborgara á veitingastaðnum Brekku.

Annars er maður bara búinn að vera vinna og mæta á æfingar með Magna og svo vera með Heijó minni. Hressandi að vinna til 16 fara á æfingu kl 18 og koma heim frá Grenivík rétt að verða 22 

Leikur á fimmtudag með Magna gegn KS/Leiftri, væri gaman að vinna þennan leik og rífa þetta aðins upp þarna á grenivíkinni.

 

Komið gott í bili, eða kannski bara komið gott alveg?

 

Kv. Goggi

Elska þig mest ástin mín!!:*:*


» 17 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 00:11:44 / Goggi

17. maí 2007

Heijó mín er sofnuð svo ég ætla að vera svo góður að blogga. Það er nefninlega vinna hjá henni kl 7 í fyrramálið... já þegar langflestir eru í fríi þá lendir aumingja ástin mín í því að vinna frá 7-17.

En ástin mín þú verður bara að líta á björtu hliðarnar, þú færð góða summu fyrir þennan dag enda ertu á hátíðarkaupi. Ég er alveg ótrúlega ánægður með þig!:*

Ef við tölum svo um mig þá er ég byrður að vinna og er búinn að vinna í tvo daga, þetta er alveg fínt en það verður samt mun skemmtilegra þegar krakkarnir koma. Ég verð semsagt flokkstóri fyrir þá sem ekki vita.

Ég var ekkert smá sáttur þegar ég komst að því að það væri frí á fimmduaginn í vinnunni og hugsaði ég mér gott til glóðarinnar að sofa vel út, enda hefur maður sofnað full seint síðustu tvo daga. En nei nei haldiði að það sé ekki morgunæfing kl 10:30 svo það plan hefur klárlega breyst.

Þór - Víkingur Ó. verður í boganum kl 19:15 á föstudag og er þetta annar leikurinn hjá okkur í deildinni. Ekki væri verra að fjölmenna í bogann og stiðja Þórsarana.

Svo er kynning á leikmönnum mfl. karla og kvenna á morgun(fimmtudag), við karlarnir erum kl 14:15 fyrir þá sem hafa einhvern áhuga á því. Efast samt um að fólk kippi sér upp við þetta.

Lag dagsins: "Linkin Park - What I´ve done" Linkin Park eru komnir aftur og líkar mér bara nokkuð vel við þetta lag.

Heijó bara 3 dagar!:*

Þetta er klárlega komið gott í bili. En ég verð að segja það að ég vill fá einhver comment á þetta. Fólk hefur verið gríðarlega slakkt að commenta uppá síðkastið. Fólk er duglegt að kíkka á síðuna en þegar kemur að commenta þá er það allt annar pakki.

kv. Goggi


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 16:26:55 / Goggi

7. maí 2007

Bloggpressa og aftur bloggpressa hehe.. jæja fólk er eithvað farið að pressa á mann að blogga, svo maður verður að vera svo góður að koma með eitt stykki blogg handa ykkur lömbunum.

Styttist óðum í að maður byrji í vinnunni. Byrja næsta þriðjudag og ég, elli og dabbi verðum illa góðir í sumar í flokkstjóranum hehe, ekki spurning!

Allir eru í prófum núna og ég votta þeim samúð mína, því ég veit að það er hundleiðinlegt í prófum!!

Gamla settið fór suður um helgina svo við Heijó vorum bara ein heima, sem er best! Þau fóru einmitt suður í þeim tilgangi að koma með drasl fyrir Harald enda er hann að fara flytja norður ásamt Ölmu sinni. Akureyri alltaf best!

Lag dagsins: "Chris Lake - Changes" ég er að fíla taktinn í laginu

Hef eithvað voðalega takmarkað að segja.. svo ég held að þetta sé bara komið gott í bili

Svo má ég ekki gleyma því að enginn annar en ********* Elli G á afmæli í dag og er kallinn orðinn 22 ára gamall, til hamingju með það sykursnúður

kv. Goggi


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 14:37:26 / Goggi

23. apríl 2007

Halló halló

Ég er ekki frá því að það sé bara kominn tími á smá blogg. Fólk farið að pressa á mann, við nefninum engin nöfn.... Heijó

Hitt og þetta búið að gerast síðustu daga, aðalega þetta.

Á fimmtudaginn síðasta semsagt 19 apríl þá var hálft ár síðan að ég og Heijó byrjuðum saman! Love You!:* Við gerðum nú eithvað þennan dag t.d. kíkkuðum í Hagkaup og Glerártorg og eithvað... svo um kvöldið bauð ég henni á Greifann og kom maður pakkaður þaðan út. Enda ekki annað hægt þegar maður fær sér steik að hætti bernésbræðra. 

Svo á föstudag kíkkaði ég með Kristjáni frænda í bíó á myndina "Shooter" alveg fínasta mynd þarna á ferð.

Svo var bara vaknað nokkuð snemma á laugardeginum, því ég fór í svokallaðan afmælisgraut með Heijó. Eftir það kíkkaði ég til Elvars bró að horfa á evertonleikinn. Svo fór maður í aðra veislu kl 17 því þá var fermingarveisla hjá Örnu frænku. Þannig að maður var bara meira og minna í einhverjum veislum þennan dag hehe.. maður fékk alveg fínasta mat og kökur þarna. Eftir það var bara tekið rólegt kvöld með Heijó.

Lag dagins: "Mika - Happy Ending"

Nenni ekki meir

Kv. Goggi


» 18 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 18:38:39 / Goggi

Ég markmaður hehe...

Halló halló

Helgin að verða búin og ég veit ekki hvað og hvað

Þetta er búið að vera fínasta helgi. Búinn að vera með henni heijó minni og svo fór ég austur að keppa með mfl. Þórs gegn Leikni F. á laugardagsmorguninn og var lagt af stað kl 06:30 takk fyrir!! Erfitt að rífa sig upp svona snemma. Gaman að segja frá því að við unnum þennan leik 3-1 og þegar það voru svona 12 mín eftir af leiknum þá fékk markmaðurinn okkar rautt spjald og hver annar en ég fór í markið hehehe. Ég fékk ekki mark á mig, svo ég get verið sáttur með það að vera einn af fáum markmönnum í meistaflokk sem hafa ekki fengið á sig mark í leik hehehe!!

Annars var svo bara sofið út í nótt enda var maður tussu þreyttur eftir gærdaginn eftir lítinn svefn. Plataði svo Heijó með mér að horfa á Everton leikinn í dag og þvílíkur endir á leiknum. Þrjú mörk á síðustu 10 mín, Charlton jöfnuðu á 89 mín en mínir menn í everton skoruðu sigurmarkið á 92 mín og það má segja að ég hafi hoppað af gleði enda þýddi þetta það að mínir menn eru komnir í 5 sæti í deildinni sem er ekkert nema gott mál.

Spurning hvað maður á að gera af sér í kvöld?

Lag dagsins: "Fall Out Boy - This Ain't A Scene, It's An Arms Race"

Jæja ég nenni því miður ekki að bulla meira

kv. Goggi


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 14:05:04 / Goggi

13. apríl 2007

Jæja það er held ég kominn tími á nýtt blogg.. eða sumir vilja meina það allavegana

Páskarnir eru búnir og æfingarnar byrjaðar aftur.

Páskafríið var bara mjög gott enda var ég með henni Heijó minni mestalla páskana og hún er án nokkurs vafa æðislegust í heimi!!:*

Hef eithvað voðalega lítið að segja.. kíkkaði tvisvar á djammið um páskana annað skiptið var á Magna og co. og svo á No Request. Það var gjörsamlega tómt húsið þegar Magni byrjaði að spila svo maður nennti ekki að vera þar lengi. Hinsvegar var mun meiri stemming á no request og var húsið troðið þá. Kom mér nokkuð á óvart að Rockstar kallinn hann Magni myndi ekki fá fleira fólk á ballið, að vísu var þetta á miðvikudegi og held ég að það hafi spilað mikið inní.

Maður er kominn með vinnu í sumar sem flokkstjóri sem er ekkert nema gott mál. Byrja 15 maí og verður gaman að vera sá sem skipar fyrir, því maður er búinn að vera krakkinn sem hlustaði á flokkstjórann hehe

Lag dagsins: "Hinder - Better Than Me"

komið gott í bili.. svo má fólk alveg kvitta fyrir innlitið

kv. Goggi


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.04.2007 17:08:55 / Goggi

jájá

Jæja kominn tími á blogg..

páskarnir að ganga í garð og ég loksins kominn í frí í fótboltanum! wúhú!!

Halli bró og Alma eru á AK núna og verða hérna um páskana..
Ég og Halli tókum heljarinnar djamm núna í fyrradag! geggjað!

Djamm í kvöld?
Þokkalega marr!

jæja ekki lengra í bili...
sææææælar

 

Ritstjóri Gogga beibs: Heijó.


» 9 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 13:42:27 / Goggi

HAHAHAHAHA

Jújú eins og ég var búinn að segja þá var Jónsi að syngja "Til Hamingju Ísland" eftir Silvíu Nótt. Þá er ég ekki að tala um Jónsa í svörtum fötum heldur hann Nonna minn sem er í Þór. Hann söng þetta lag í æfingarferðinni svokölluðu sem var þarsíðustu helgi. Það má segja að fólk hafi misst sig úr hlátri þegar hann byrjaði að syngja heheh.

Þannig að hérna er myndbandið af þessum skemmtilega atburði:

Svo er ég búinn að setja myndir frá ferðinni undir nafninu "Æfingarferð á Illugastaði"

Lag dagsins: "MIKA - Relax, Take It Easy" er búinn að hlusta svolítið á MIKA diskinn og hann verður bara betri með hverju skiptinu sem maður hlustar.

kv. Goggi


» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 55734
Könnun
Hvort ertu?